Sjónvarpsmaðurinn góðkunni Gísli Marteinn Baldursson hafði ástæðu til að vera ánægður með þáttinn sinn á RÚV í gær. Þáttur Gísla, Vikan, nýtur stöðugra vinsælda en í honum fær hann góða gesti til sín á föstudagskvöldum.
Gísli var ánægður með þáttinn en rak svo augun í tíst þegar heim var komið í gærkvöldi. Þar var Gísla legið á hálsi fyrir að vera í sokkum sem síga niður.
„Getur einhver gefið Gísla Marteini almennilega sokka sem síga ekki niður?! Ökklasokka mögulega,“ segir málshefjandi, kona að nafni Anna María.
Gísli deildi þessu tísti á eigin Twitter-síðu og bætti við:
„Ég var búinn að vera rosalega ánægður með þáttinn þar til ég sá þetta tíst. Frábærir gestir, frábær tónlist, nýtt og gamalt í bland - en blöstu svo bara trélímshvítir spóaleggirnir við alþjóð? Ég bið þjóðina afsökunar. Þið eruð þjóðin.“
Ég var búinn að vera rosalega ánægður með þáttinn þar til ég sá þetta tíst. Frábærir gestir, frábær tónlist, nýtt og gamalt í bland - en blöstu svo bara trélímshvítir spóaleggirnir við alþjóð? Ég bið þjóðin afsökunar. Þið eruð þjóðin. #vikan https://t.co/LYGJSnSqrs
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) October 29, 2021