Gísli Marteinn útskýrir hvers vegna hann borðar ekki kjöt

Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, borðar ekki kjöt og hefur hann raunar spáð því að kjötneysla muni deyja út á næstu árum og áratugum.

Hann steig fram á Twitter í gær þar sem hann útskýrði ástæður þess að hann borðar ekki kjöt.

„Ástæða þess að ég borða ekki kjöt er sú að ég elska dýr og mér finnst í raun enginn munur á að drepa hundinn sinn og borða hann eða láta sláturhús drepa kálf til að borða hann. Hver einasta frétt um dýraníð ætti að vera áminning um að þessar vitibornu skepnur eiga betra skilið,“ segir hann og vísar í fréttir um svokallaðar blóðmerar sem sætt hafa illri meðferð hér á landi.

Blóðmerar eru fylfullar merar sem tekið er blóð úr en tilgangurinn er að vinna dýrmætt hormón sem finna má í fylgjunni. Hormónið er svo einna helst notað í svínarækt.

Færsla Gísla Marteins vakti talsverða athygli og lagði blaðamaðurinn Valur Grettisson orð í belg og tók undir með sjónvarpsmanninum góðkunna.

„Ofan á allt annað er það alveg nett sadískt að draga blóð úr einni skepnu til þess að önnur skepna (svín) geti átt fleiri afkvæmi sem einnig munu sæta vafasamri meðferð og að lokum dauða til þess að metta okkur mennina.“

Aðrir eru þó þeirrar skoðunar að samlíking Gísla Marteins sé langsótt. „Ég elska líka dýr. Tek þátt í sauðburði á vorin, fátt sætara en nýfædd lömb. Ég eyði 30 dögum í að smala lömbunum heim, samt er lambakjöt uppáhaldið mitt og besta kjötið frá bænum sem ég smala á. Ég á líka hund, myndi ekki borða hann þó það væri eina kjötið eftir í heiminum,“ segir í einni athugasemd.