Sjónvarpsmaðurinn Gísli Marteinn Baldursson segir það segja mjög mikla sögu um mikilvægi Ríkisútvarpsins hverjir hata það. Þetta kemur fram á Twitter en Sigurður Már Jónsson, starfsmaður Miðflokksins segir ummælin lýsa undarlegri afstöðu Gísla.
„Það segir mjög mikla sögu um mikilvægi Rúv hvað fólkið með allar verstu skoðanir landsins hatar stofnunina mikið,“ skrifar Gísli.
„Alveg einsog hjá öfgahægri flokkum í Evrópu, vill þetta fólk ekki leggja almannaútvarpið niður - það vill bara breyta því hvaða skoðanir heyrast þar og hverjar ekki.“
Óhætt er að segja að ummælin veki mikla athygli. Sigurður Már Jónsson, starfsmaður Miðflokksins, deilir ummælunum á Facebook og segir þau athyglisverð. Sjálfur hefur Sigurður rætt hlutverk RÚV, meðal annars í pistli sem birtist á mbl.is í mars síðastliðnum.
„Ég póstaði þessum ummælum af því mér fannst þau lýsa undarlegri afstöðu, eins og öll gagnrýni á Ríkisútvarpið sé frá vondu fólki með rangar skoðanir!“ skrifar Sigurður.
„Ég hef gagnrýnt Ríkisútvarpið en það gerir auðvitað margt vel, skárra væri það nú með alla þessa fjármuni. Þá starfa þar margir ágætir fagmenn en auðvitað verður að endurmeta hlutverk og starfsemi RÚV eins og á við um alla starfsemi.“
Það segir mjög mikla sögu um mikilvægi Rúv hvað fólkið með allar verstu skoðanir landsins hatar stofnunina mikið.
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) July 25, 2021
Alveg einsog hjá öfgahægri flokkum í Evrópu, vill þetta fólk ekki leggja almannaútvarpið niður - það vill bara breyta því hvaða skoðanir heyrast þar og hverjar ekki.