Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, segist í raun aðeins treysta fimm einstaklingum til að gæta hagsmuna þjóðarinnar á tímum COVID-19 faraldursins.
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir hefur kallað eftir því að fleiri komi að borðinu varðandi ákvarðanatöku, til dæmis stjórnvöld.
Gísli Marteinn segir á Twitter-síðu sinni að hann geti ekki ímyndað sér betri fimm manna hóp en þríeykið, það er Ölmu Möller landlækni, Þórólf landlækni, Viði Reynisson yfirlögregluþjón og þau Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra.
„Ég vil bara að þau ákveði þetta og við hin treystum þeirra mati. Takk.“
Sitt sýnist hverjum um þetta mat Gísla og er útvarpsmaðurinn Þorkell Máni Pétursson á því að pólitíkin eigi að koma sem minnst nálægt ákvörðunum í faraldrinum.
„Það á að taka allar covid ákvarðanir út frá vísindum. Ekki pólitík. Skulum fá sem minnst af hugmyndum frá stjórnmálamönnum. Þær eru almennt mjög vondar. Besta leiðin útúr vandanum er líklega að láta þríburana hafa öll völd i landinu,“ segir hann.
Gísli Marteinn áréttar síðar í þræðinum á Twitter að ef um væri að ræða fimm manna hóp sem þyrfti að taka ákvarðanir þá væri þetta sá fimm manna hópur sem væri hvað best í stakk búinn að taka réttar ákvarðanir.
Þegar Gísli er spurður hvort Bjarni Benediktsson þurfi endilega að vera í hópnum, segir hann: „Ég held að Þórólfur myndi segja: Nei það þarf ekki að vera Bjarni, en það þarf að vera einhver sem getur tekið erfiðar ákvarðanir sem varða þjóðarhag, getur sett landið efnahagslega á hliðina osfrv. Og ég myndi segja að fjármálaráðherra væri sá aðili. Hver sem sá aðili er.“
Gísli Marteinn segir svo að hann sé ekki að leggja til að stjórnmálamenn eigi að taka völdin af vísindamönnum. Þvert á móti.
„Þórólfur er hinsvegar að biðja um fleiri að borðinu, sem hafa umboð til að taka erfiðar efnahagsákvarðanir. Honum finnst það ekki sitt hlutverk. Og ég myndi frekar vilja þríeykið+forsætisráðherra+fjármálaráðherra, frekar en öll hagsmunasamböndin inní svona hóp sem Þórólfur þyrfti að rífast við og sá frekasti fengi að ráða. Myndi bara treysta þríeykinu og þessum tveim til að reyna öll að gæta hagsmuna þjóðarinnar.“