Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er þeirrar skoðunar að þingmenn gætu vel verið á lægri launum en þeir eru.
„Kannski moðvolg skoðun en mér finnst þingmenn á óþarflega háum launum. Klisjan um að við fáum svo frábært fólk með því að hækka launin er ekkert endilega rétt. Besta fólkið á þingi væri þar líka þótt launin væru „bara“ milljón á mánuði,“ segir Gísli Marteinn á Twitter.
Þingfararkaup alþingismanna er nú 1.285 þúsund krónur. Sumir eru þó með talsvert hærri laun, til dæmis forseti Alþingis, varaforsetar Alþingis og formenn þeirra flokka sem eiga sæti á þingi. Þá fá formenn þingnefnda og þingflokka álagsgreiðslur á laun sín.
Ekki eru allir á því að þingmenn séu á of háum launum. Gísla er til dæmis bent á það að áreitið á Alþingi sé mikið og vel skiljanlegt að launin séu hærra en gengur og gerist hjá meðallaunamanni.
„Ég er ekki að gera lítið úr álaginu og áreitinu. En ég held bara að milljón á mánuði myndi sannarlega duga til að fá hugsjónafólkið sem brennur fyrir að breyta samfélaginu til að gefa kost á sér. Það hefur margoft komið fram að þetta eru há laun í samanburði við evrópuþjóðir,“ svarar Gísli Marteinn.