Gísli Marteinn: „Það eru bílarnir sem eru vandamálið“

„Það eru bílarnir sem eru vandamálið. Meðvirknin með þessu bíla-einræði hér er asnaleg,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi.

Gísli Marteinn deilir færslu Jóns Gnarr, fyrrverandi borgarstjóra, á Twitter þar sem Jón lýsti þeirri skoðun sinni að hann væri orðinn þreyttur á einsleitum fréttaflutningi um rafmagnshjól og notendur þeirra.

Að „við notendur séum hálfvitar og full og ættum að fara hægar og vera með hjálm. okkur vantar umferðarlög og betri bílstjóra sem keyra ekki á fólk,“ sagði Jón og tóku margir undir með honum.

Einn þeirra var Gísli Marteinn sem segir að bílarnir séu vandamálið en ekki til dæmis þeir sem nota rafmagnshjól eða hlaupahjól.

„Sú einfalda aðgerð að láta bílana aka hægar gerir allt umhverfið öruggara, betra, fallegra, grænna, hreinna og skemmtilegra.“

Einn lýsti sig þó fullkomlega ósammála þessu og kveðst sá hafa hjólað um það bil sjö þúsund kílómetra síðustu tvö árin á höfuðborgarsvæðinu.

„Gæti ekki verið meira ósammála. Fækka umferðarljósum um svona 90% og hækka hámarkshraða takk. Þessi slys koma til vegna þess að íslenskir ökumenn eru fóðraðir af of öruggu kerfi. Allir á autopilot.“