Gísli Marteinn Baldursson, fyrrverandi borgarfulltrúi og sjónvarpsmaður, er ekki hrifinn af hugmyndinni um Sundabrú sem kynnt var í gær.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, kynnti niðurstöður starfshóps á vegum Vegagerðarinnar sem var falið að meta tvo valkosti um legu Sundabrautar. Telur hópurinn að Sundabrú sé hagkvæmari kostur en jarðgöng.
Gísli Marteinn tjáði sig um niðurstöðuna á Twitter í gær og kallaði eftir því að hver einasta króna sem á að fara í Sundabrú verði látin renna til viðhalds og endurbóta á hættulegum vegum úti á landi. Þannig væri hægt að laga umferðina bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni.
„Sundabrú mun AUKA umferðarteppur og mengun í Reykjavík og á meðan eru óboðlegir vegir úti á landi fjársveltir.“
Í niðurstöðum starfshópsins var það talið vega þyngst að kostnaður við brúarleiðina væri lægri, brú henti betur fyrir alla samgöngumáta og almenningssamngöngur og að ný Sundabraut á brú bæti samgöngur innan höfuðborgarsvæðisins og til og frá borginni með því að dreifa umferð, minnka álag á öðrum stofnvegum og stytta ferðatíma.
Friðjón Friðjónsson, almannatengill og Sjálfstæðismaður, svarar Gísla Marteini og spyr hvers vegna honum sé svona illa við Mosfellsbæ að vilja að beina allri umferð í gegnum hann.
„Mér er svo vel við Grafarvog að ég vil ekki að Hallsvegurinn verði sú gegnumaksturshraðbraut sem hann verður þegar hann tengist beint inn á Sundabrú. Mosó mun sannarlega fara þessa leið í bæinn og Úlfarsfellið sömuleiðis. Þetta gjörbreytir Grafarvoginum,“ segir Gísli Marteinn.
Því er svo haldið fram í annarri athugasemd að vinstri menn segi að öll samgöngumannvirki í Reykjavík auki umferðarteppur. Því er Gísli Marteinn hjartanlega ósammála.
„Alls ekki! Til dæmis mun bæði Borgarlínan og hjólastígar draga úr umferðarteppum. Sömuleiðis göngu- og hjólabrúin yfir í Kopavog. En mislæg gatnamót og Sundabrúin með þeim munu gera akkúrat það sem þau eiga að gera: Auka umferð bíla, hraða þeirra og mengun. Og bílaumferðarteppur.“
Hvernig á að laga umferðina bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni:
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) February 3, 2021
Setja hverja einustu krónu sem á að fara í Sundabrú, í hættulega vegi úti á landi!
Sundabrú mun AUKA umferðarteppur og mengun í Reykjavík og á meðan eru óboðlegir vegir úti á landi fjársveltir.