Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, hefur skorað á Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, að mæta í þátt sinn, Vikan með Gísla Marteini, næsta föstudagskvöld.
Vill Gísli Marteinn að Bjarni sýni og sanni að hann geti tekið 120 kíló í bekkpressu eins og hann hélt fram í útvarpsþættinum Brennslan á dögunum. Eins og gefur að skilja þarf töluverðan styrk og nokkra þjálfun til að lyfta 120 kílóum í bekkpressu. Bjarni var öflugur fótboltamaður á sínum yngri árum og þykir nokkuð kraftalega vaxinn. Einhverjir efast þó um að hann geti lyft þessari þyngd.
Bjarni deildi frétt Vísis á Twitter-síðu sinni í gær en fréttin fjallaði um umrætt viðtal við Bjarna. Fyrirsögn fréttarinnar var: Tekur 120 kíló í bekk og hringir of sjaldan í mömmu. Bjarni sagði í færslu sinni: „Stundum þarf að leggja dagleg verkefni til hliðar og ræða stóru málin.“
Gísli Marteinn var ekki lengi að skrifa athugasemd við færslu Bjarna og sagði:
„Fólk er dáldið að draga þessa þyngd í efa Bjarni. Ég sé bara eina leið til að klára þetta mál: Bekkur inní stúdíóið hjá #vikan og fáum Júlían J. K. Jóhannsson til að sannreyna þyngdina og þú þrýstir þessu upp fyrir framan alþjóð fyrir páska.“
Júlían, sem er einn sterkasti maður landsins, tók vel í þessa beiðni Gísla Marteins og sagði: „Ekki spurning, þjóðin á skilið að þessar tölur séu sannreyndar.“
Þegar þetta er skrifað hefur ekkert svar borist frá Bjarna og því alls óvíst á þessari stundu hvort hann svari kallinu.
Stundum þarf að leggja dagleg verkefni til hliðar og ræða stóru málin.https://t.co/5LFIDV03I0
— Bjarni Benediktsson (@Bjarni_Ben) February 2, 2021
Fólk er dáldið að draga þessa þyngd í efa Bjarni. Ég sé bara eina leið til að klára þetta mál: Bekkur inní stúdíóið hjá #vikan og fáum @JkjJulian til að sannreyna þyngdina og þú þrýstir þessu upp fyrir framan alþjóð fyrir páska.
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) February 2, 2021
Ekki spurning, þjóðin á skilið að þessar tölur séu sannreyndar
— Júlían J.K.J. (@JkjJulian) February 2, 2021