Fjölmiðlamaðurinn og borgarfulltrúinn fyrrverandi Gísli Marteinn Baldursson segir að andstæðingar Hildar Björnsdóttur í Sjálfstæðisflokknum þora ekki í hana.
Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi hefur gefið út að hún sé að íhuga að bjóða sig fram á móti Hildi en enn sem komið er, er Hildur sú eina sem formlega sækist eftir því að leiða Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningunum í vor.
Þónokkrir hafa gefið út að þeir sækist eftir sæti á lista, nú síðast Kjartan Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi sem vill annað sætið.
Gísli Marteinn segir á Twitter:
„Andstæðingar Hildar Björns þora ekki í hana en ætla að raða sér í næstu sæti og eru öll með stefnuna: Ekki meiri þéttingu, fleiri lóðir í úthverfin, bannað að byggja í Vatnsmýri, greiðari bílaumferð og mislæg gatnamót og tortryggni á 'svokallaða Borgarlínu',“ segir hann og bætir við línu ættaða frá Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseta: „Make Rvk great again.“