Gísli Marteinn segir að kjöt verði bannað

Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, telur að einn daginn verði sala á kjöti bönnuð.

Gísli Marteinn deilir Twitter-færslu myndlistakonunnar Auðar Ómarsdóttur sem spáir því að einn daginn verði ólöglegt að borða kjöt. „Og allir verða bara haha manstu þegar mannfólk át kjöt,“ segir Auður í færslu sinni.

Gísli Marteinn tekur undir þetta og segir:

„Staðfest. En jafnaldrar mínir munu fara í undirheimana og kaupa sér rautt kjöt á svörtum markaði. En aldrei þessu vant munu Píratar ekki berjast fyrir afglæpavæðingu neysluskammta kjöts. Sem sumir munu segja að sé ósamkvæmni, en það er röng skoðun. Satt og sannað.“

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, segir að við séum ekki alveg komin svona langt. Bendir hann þó á að loftslagsstefna Pírata sé með langan kafla um vistvæna matvælaframleiðslu.

Hvort nokkurn tímann verði bannað að borða kjöt skal ósagt látið, en miðað við þá gríðarlegu framleiðslu sem er í dag gæti orðið nokkur bið eftir því. Þó má geta þess að sífellt fleiri eru hættir að borða kjöt eða afurðir sem unnar eru úr dýrum.