Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, skýtur föstum skotum að þeim kaupmönnum á Laugavegi sem lagst hafa hart gegn göngugötuvæðingu borgaryfirvalda.
„Gleymum því ekki að þessir 6 kaupmenn á Laugaveginum kvörtuðu alveg jafn mikið þegar gatan var stútfull af fólki 2010-2020. Aldrei í sögu götunnar verið fleira fólk. Samt var vælt. Þeir hata göngugötur þótt þær dragi að sér fólk, verslun og stemningu og almenningur elski þær,“ sagði hann í færslu á Twitter.
Gísli Marteinn er þarna meðal annars að vísa í Bolla Kristinsson, kaupmann sem kenndur er við verslunina 17, og veitingamanninn Lárus Guðmundsson á Rossopomodoro. Bolli hefur staðið framarlega í flokki þeirra sem berjast gegn því að Laugavegurinn verði gerður að göngugötu.
Lárus á Rossopomodoro birti svo mynd á Facebook-síðu sinni sem var tekin á Laugavegi í hádeginu síðastliðinn fimmtudag. Á myndinni sjást örfáir gangandi vegfarendur og sagði Lárus meðal annars að miðborgin og Laugavegurinn væru alltaf tóm af fólki og bílum.
Myndbirting Lárusar rímaði ekki alveg við sambærilega mynd sem veitingamaðurinn Ólafur Örn Ólafsson tók á Laugaveginum um miðjan nóvembermánuð, en þar mátti sjá býsna marga vegfarendur á Laugaveginum.
Gleymum því ekki að þessir 6 kaupmenn á Laugaveginum kvörtuðu alveg jafn mikið þegar gatan var stútfull af fólki 2010-2020. Aldrei í sögu götunnar verið fleira fólk. Samt var vælt. Þeir hata göngugötur þótt þær dragi að sér fólk, verslun og stemningu og almenningur elski þær.
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) February 1, 2021
Þessi mynd er tekin í hádeginu kl.12.25 fimmtudaginn 28. janúar, það skiptir raunverulega ekki máli hvenær hún er tekin,...
Posted by Lárus Guðmunsson on Föstudagur, 29. janúar 2021
Það kemur aldrei neinn á þessa göngugötu, sögðu þeir. Það er alltof kalt til þess, fólk vill vera inni í bílunum sínum, sögðu þeir. Rangt! Segi ég Tekið í dag. 14. Nóv. Hitastig 0 gráður
Posted by Ólafur Örn Ólafsson on Laugardagur, 14. nóvember 2020