Gísli Marteinn sammála Ágústu: „Nagladekk eru algjör óþarfi í Reykjavík og þau drepa fólk!“

Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, tekur heilshugar undir orð Ágústu Þóru Jónsdóttur, varaformanns Landverndar, þess efnis að nagladekk séu með öllu óþörf í Reykjavík.

Reykjavíkurborg sendi frá sér áskorun á samfélagsmiðlum í morgun þar sem fólk var hvatt til þess að huga að því að nota önnur dekk en nagladekk.

Ágústa ræddi málið við Vísi í dag þar sem hún vísaði í rannsóknir þess efnis að góð vetrardekk væru jafngóð í hálku og nagladekk. „Þannig að við erum komin á þann stað þar sem nagladekk eru bara úrelt,“ sagði hann.

Á þessum árstíma verður umræðan á samfélagsmiðlum um kosti og galla nagladekkja hávær. Gísli Marteinn hefur lengi talað gegn notkun nagladekkja og ítrekað bent á að þau séu óþörf í borginni. Hann ítrekar þessa skoðun sína á Twitter í dag og hrósar Ágústu fyrir að stíga fram.

„Nagladekk eru algjör óþarfi í Reykjavík og þau drepa fólk! Og auk þess að drepa þá skaða þau fóstur, þau stuðla að alzheimer, þau auka hávaðamengun og svo framvegis! Burt með þau,“ segir hann.

Gísli Marteinn kallaði eftir því í vor, um það leyti sem notkun nagladekkja var bönnuð 15. apríl síðastliðinn, að lögreglan beitti strax sektum á þá sem gerðust sekir um að nota nagladekk eftir leyfilegan notkunartíma þeirra. Oftar en ekki hefur aprílmánuður fengið að líða þar til lögregla fer að beita sektum.