Ártúnshöfði mun gjörbreytast á næstu árum. Iðnaðarhúsnæði mun hverfa fyrir blandaðri byggð þar sem Borgarlínan mun spila stórt hlutverk. Fyrsta lota Borgarlínu mun ferðast frá þessu hverfi og við Krossmýrartorg verður Borgarlínustöð.
Margir eru ánægðir með þessar tilvonandi breytingar á Ártúnshöfða, þar á meðal Gísli Marteinn Baldursson, fjölmiðlamaður:
„Þetta er alltsaman frábært og meira svona!,“ segir hann á Twitter.
Er hann þó með smá athugasemd við þetta: „Mér finnst samt umfang malbiksins þarna vera óþarflega mikið,“ segir hann.
„Gangandi og hjólandi munu áfram vilja fara yfir götuna og þetta er óþarflega löng leið. Þjappa aðeins. Byggt umhverfi á að miðast við manneskjuna sem stendur á gangsstétt.“