Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík, hefur sterkar skoðanir á ýmsu er varðar borgarmálin og er hann duglegur að láta í sér heyra á Twitter.
Gísli Marteinn ræddi um nagladekkjanotkun Íslendinga á Twitter í gær en hann er ekki beint mikill aðdáandi þeirra.
„Allar þjóðir eru að reyna að auka loftgæði, því mengun drepur. Á Íslandi er löggan hinsvegar látin senda út yfirlýsingu um að ökumenn þurfi ekki að fara af nöglum í Rvk þótt lögin banni þá eftir 15. apríl. Hvað er að?“
Gísli Marteinn merkti Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra í færslunni en enn sem komið er hefur ekkert þeirra blandað sér í umræðuna.
Hann merkti svo Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í færslunni enda segir hann svifryksmengun og nagladekk fyrst og fremst vera heilbrigðisvandamál. „Segir ekki skýrsla frá ríkisstjórninni að 80 manns láti lífið á hverju ári vegna svifryks? Óskiljanlegt að láta fólk vera á nöglum langt fram á sumar.“
Gísli bendir á að samkvæmt lögunum sé bannað að vera á nöglum eftir 15. apríl nema aðstæður gefi tilefni til annars. „Þannig löggan hefur klára heimild - EF aðstæður gefa tilefni til. Sem þær gera ekki núna,“ segir hann en sól og blíða hefur verið á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga og hiti yfir daginn með ágætum.