Gísli Marteinn mun sakna Katrínar: „Mikill missir fyrir borgarbúa“

Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, segir að sjónarsviptir verði af Katrínu Atladóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Katrín hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í borgarstjórn. Hyggst hún þess í stað þiggja starf hjá Dohop síðar á árinu.

„Þetta er mikill missir fyrir borgarbúa. Katrín hefur verið frábær borgarfulltrúi og svo sannarlega munað um hana, sem ekki er hægt að segja um alla borgarfulltrúana 23 sem sitja í borgarstjórn,“ segir Gísli Marteinn á Twitter og bætir svo við innan sviga að hann giski á að innan við eitt prósent borgarbúa gætu nefnt suma þessara borgarfulltrúa á nafn.

Katrín hefur verið nokkuð áberandi á kjörtímabilinu þegar kemur að bíllausum lífsstíl og var hún hvatamaður að gerð hjólreiðaáætlunar Reykjavíkur.