Gísli Marteinn Baldursson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík, er mjög ósáttur við að flugfélagið Air Atlanta hafi fengið leyfi til að fljúga Boeing 747-þotu í lágflugi yfir höfuðborgarsvæðið í gær.
Óhætt er að segja að mörgum íbúum höfuðborgarsvæðisins hafi brugðið þegar vélin birtist skyndilega, með tilheyrandi drunum, ekki langt yfir hæstu byggingum höfuðborgarsvæðisins.
Um er að ræða nýja flugvél í flota Air Atlanta og kom hún til landsins í gær. Fékk félagið leyfi til að fljúga vélinni yfir höfuðstöðvar sínar til að gleðja starfsmenn eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Sjá einnig: Reykvíkingum brugðið: „Það nötraði allt hérna“
Í fréttum Stöðvar 2 var rætt við unga konu, Helgu Kristínu Torfadóttur, sem er búsett í Lindarhverfi í Kópavogi. Hún býr á efri hæðum blokkar í hverfinu og telur hún að vélin hafi verið 20 til 30 metrum fyrir ofan þakið á húsinu.
„Gæslan flýgur oft hérna yfir en í góðri hæð og það eru alveg nógu mikil læti en þetta var allt of nálægt og ég var í hálfgerðu áfalli eftir þetta,“ sagði hún.
Gísli Marteinn tjáði sig um málið á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi þar sem hann sagði:
„Mjög vel gert hjá Helgu Kristínu! Þetta er algjörlega fáránlegt og algjör dellukalla-, rassvasastjórnunar-hugsun sem leyfir svona. Gert til að ‘gleðja starfsfólk’ flugfélagsins! Einmitt. Slíkir ‘glaðningar’ hafa áður endað í hræðilegum flugslysum.“
Flestir taka undir með Gísla Marteini í athugasemdum undir færslunni.
„Það má endilega finna aðra aðferð til að "gleðja" þessa Atlanta starfsmenn. Með blómvendi eða konfektkassa með mynd af flugvél Þetta er óttalegt rugl að fljúga svo lágt að maður sjái hvítuna í augum flugmannanna,“ segir einn á meðan annar bætir við:
„Svona lagað er ábyrgðarleysi og galgopaháttur, sem á alls ekki heima í flugbransanum.“