Fjölmiðlamaðurinn Gísli Marteinn Baldursson tjáir sig um jeppaeigendur á Twitter í dag.
Twitter-notandi nokkur birti mynd sem sýndi að jeppa fyrir framan Melabúðina sem hafði verið lagt á gangstétt fyrir gangbraut.
Myndin virðist hafa farið fyrir brjóstið á Gísla og sagði hann að þeir sem eigi stóra bíla telja sig eiga meiri rétt en aðrir.
„Það hefur verið rannsakað og er staðreynd að stórir bílar láta fólk halda að það eigi meiri rétt en aðrir. Á hverjum degi leggur fólk á jeppum þarna, sjaldan fólksbílafólk.“ segir Gísli sem biðlar til jeppafólks að sýna tillitsemi.
„Ef þið eigið jeppa, nenniði þá plís að standast freistinguna að halda að þið séuð merkilegri en við hin?“