Gísli Marteinn hrósar Þór­dísi og margir taka undir

Sjón­varps­maðurinn Gísli Marteinn Baldurs­son segir að það megir ekki gleyma því að hrósa fólki þegar það stendur sig vel.

„Það er mjög auð­velt að finnast sjálf­sagt að ráð­herrar standi sig vel en kvarta þegar þau gera það ekki. En mér hefur fundist Þór­dís Kol­brún standa sig vel í nýju ráðu­neyti á krefjandi tímum. Bæði það sem hún segir og gerir hefur mér fundist traust­vekjandi,“ skrifar Gísli.

Þor­gerður Katrín Gunnars­dóttir, for­maður Við­reisnar, tekur undir með Gísla og skrifar: „Sam­mála. Það sem meira er hún hefur mark­visst verið í sam­bandi og í sam­ráði við utan­ríkis­nefnd. Þótt það sé lögum skv þá er það meira og ein­lægara en verið hefur síðustu ár. Fyrir vikið, sam­hentari stjórn­mál á skrýtnum tímum í utan­ríkis­málum.“

Svo virðist sem fjöl­margir taka undir með Gísla ef marka má at­huga­semdir undir færslunni og skrifar Eva Pandora Baldurs­dóttir, fyrr­verandi þing­maður Pírata, meðal annars að Þór­dís sé „negla“