Gísli Marteinn: „Hneyksli hvað það virðist öllum vera drullusama um þetta mál“

„Kannski myndi ölvunarakstur minnka ef það væri auðveldara að fá leigubíl,“ segir Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á Twitter-síðu sinni og kallar eftir auknu frelsi á leigubílamarkaði.

Fréttablaðið greindi frá því fyrir skemmstu að eftirlitsstofnun EFTA hefði sent stjórnvöldum rökstutt álit vegna brota á EES-samningnum með takmörkunum á úthlutun leigubílaleyfa. Við það tilefni sagði samgönguráðherra álitið setja leigubílafrumvarpið í forgang á nýju þingi, sem gæti opnað fyrir farveitur á borð við Uber og Lyft hér heima.

Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður, fyrrverandi borgarfulltrúi og einlægur áhugamaður um borgarmálin, blandar sér í umræðuna við færslu Katrínar.

„Hárrétt. Ég verð að segja að mér finnst það bara hneyksli hvað það virðist öllum vera drullusama um þetta mál. ESB virðist ætla að þvinga okkur útí frelsi í þessu - einsog í svo ótalmörgu öðru.“

Katrínu er svo bent á að bílstjórar Uber lifi sumir hverjir eins og kóngar. Katrín ætti því frekar að tala við vin sinn, Bjarna Benediktsson, um að lækka álögur á leigubíla því þá yrði kannski ódýrara að taka hann.