Gísli Marteinn hjólar í sinn gamla flokk: „Íbúar ALLRA hverfa í borginni vilja rólegri bílaumferð“

Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er ekki sáttur við sinn gamla flokk ef marka má færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í dag.

Umræðan um lækkun hámarkshraða á götum borgarinnar hefur verið áberandi að undanförnu, en eins og kunnugt er samþykkti skipulags- og samgönguráð að lækka hámarkshraða á götum borgarinnar þannig að hann verður aldrei hærri en 50 kílómetrar á klukkustund.

Sitt sýnist hverjum um þetta en minnihlutinn í borgarstjórn, Sjálfstæðisflokkurinn þar á meðal með Eyþór Arnalds í oddvitasætinu, hefur gagnrýnt þessa ákvörðun harðlega. Gísli Marteinn hristir hausinn yfir afstöðu flokksins.

Ótrúleg málefnaafstaða

„Sjálfstæðisflokkurinn í borginni er á móti því að ökuhraði bíla inni í hverfum borgarinnar verði lækkaður. Það er einhver ótrúlegasta málefnaafstaða flokksins síðan hann lagði til að Bústaðavegurinn skyldi tvöfaldaður. Foreldrar sem senda börnin sín í skóla eða frístundir yfir Vesturberg, Sundlaugaveg, Snorrabraut, Réttarholtsveg eða Hallsveg eru alveg áreiðanlega ekki sammála XD um að meiri og hraðari bílaumferð sé betri.“

Gísli Marteinn segir að Grýlan sem Sjálfstæðisflokkurinn reynir að setja upp í baráttunni fyrir auknum hraða í hverfum sé að umferðin muni leita inn í íbúagötur ef hámarkshraði verður lækkaður.

„Dæmið sem þau taka er alltaf Hofsvallagatan. Það vill til að ég hef búið í 20 ár rétt við Hofsvallagötu og rek viðskipti við þá götu. Ég sat auk þess í borgarstjórn þegar breytingarnar voru gerðar á götunni 2013 og hef fylgst náið með málinu bæði fyrir og eftir þann tíma. Ég horfi líka daglega á börn fara yfir götuna á leið í skóla eða frístundir.

Það er fyrir það fyrsta mjög merkilegt að XD skuli velja að vera á móti lækkuðum hraða við Hofsvallagötu. Fjöldi fólks býr við götuna (þótt húsin tilheyri í mörgum tilvikum Víði-, Reyni-, Greni- eða Hagamel), þannig að Hofsvallagatan sjálf er íbúagata og íbúarnir eru sannarlega ánægðir með breytinguna.“

Með ólíkindum að vera á móti þessari þróun

Gísli Marteinn bendir á að eftir að hraðinn var lækkaður hafi sprottið upp þrjú vinsæl fyrirtæki við götuna: Hagavagninn, Brauð og Co. og Kaffihús Vesturbæjar. Á þessum stöðum geti fólk setið úti við og notið veitinga og félagsskaps frá hvert öðru.

„Umferðaröryggi er meira, börnum er treyst til að fara sjálf um hverfið sitt, mengun er minni, hávaði frá umferð minni og mannlíf í götunni er margfalt meira en það var fyrir breytinguna. Það verður að teljast með ólíkindum að stjórnmálaflokkur ákveði að vera á móti þessari þróun og taka hana sem dæmi um víti til að varast!“

Gísli Marteinn spyr svo hvort bílaumferð hafi leitað inn í nærliggjandi íbúagötur. Því er fljótsvarað, að mati Gísla. „Nei, það er akkúrat ekkert sem bendir til að svo sé. Þvert á móti benda nákvæmar talningar til þess að það hafi ekki gerst. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei viljað segja okkur *hvaða* íbúagötur þetta eru sem umferðin á að hafa leitað inní. Er það Melhaginn? Er það Grenimelur eða Víðimelur? Þetta eru alltsaman 30km götur og væri furðulegt ef ökumenn færu af hinni 40km Hofsvallagötu inní 30km Reynimel til að stytta sér leið. Talningar benda líka til að enginn sé að gera það.“

Umferð minnkað eftir breytingarnar

Gísli segir að breiðasta gatan af Melagötunum svokölluðu sé Hagamelurinn, auðveldast væri fyrir ökumenn að velja hana ef þeir vilja leita inn í nærliggjandi götur.

„En talningar staðfesta að bílaumferð inn á Hagamel af Hofsvallagötu hefur *minnkað* eftir breytingarnar, bæði til austurs og vesturs. Sama gildir um umferð á gatnamótum Ægisíðu/Hofsvallagötu, og líka Hofsvallagötu/Hringbraut. Talið var á 8 „sniðum“ við Hofsvallagötu og í nágrenni hennar. Allsstaðar hefur umferðin minnkað, með einni undantekningu: Gatnamót Birkimels og Hringbrautar. Þar hafði umferð aukist.“

Gísli Marteinn segir að meginskýringin sé að vegna framkvæmda við Hús íslenskunnar var Guðbrandsgötu lokað 2013, en það var aðalleiðin frá Suðurgötu inn að Þjóðarbókhlöðu og Hótel Sögu. Sú umferð hafi nær öll færst yfir á Birkimel.

„En jafnvel þótt einhver umferð hefði færst af Hofsvallagötu yfir á Birkimel við breytingarnar á Hofsvallagötu, væri það hið besta mál! Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þá sker Hofsvallagatan í sundur skóla- og frístundahverfi, sem Birkimelurinn gerir ekki. Margfalt fleiri börn eiga erindi yfir Hofsvallagötu en Birkimel enda er síðarnefnda gatan í útjaðri hverfisins en Hofsvallagatan í því miðju. Birkimelurinn er auk þess 30km gata með öflugum hraðahindrunum og lítil hætta á hraðakstri þar.“

Gísli Marteinn vandar sínum gamla flokki ekki kveðjurnar og segir að íbúar í öllum hverfi vilji minni umferðarhraða.

„Eftir stendur því að dæmið sem Sjálfstæðisflokkurinn notar sem hina hræðilegu Grýlu gegn lækkun hraða inni í hverfum borgarinnar, er algjört sjálfsmark. Minni hraði á Hofsvallagötu hefur skilað sér í betra hverfi, auknu mannlífi, meira öryggi og umferð hefur ekki aukist í öðrum íbúagötum. Ég er sannfærður um að hverfisstemning í öðrum hverfum borgarinnar myndi líka njóta góðs af minni umferðarhraða. Enda er það mín reynsla af borgarmálum að íbúar ALLRA hverfa í borginni vilja rólegri bílaumferð, aukið öryggi, minni mengun og meira mannlíf. Það að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hamast gegn þeirri stefnu veldur miklum vonbrigðum.“