Gísli Marteinn hjólar í borgina: „Al­gjör­lega glatað hjá Reykja­víkur­borg“ – Borgin svarar

Sjón­varps­maðurinn Gísli Marteinn Baldurs­son eys úr skálum reiði sinnar á Twitter í dag. Til­efnið var frétt Frétta­blaðsins frá því í dag sem sýndi bíl á vegum Reykja­víkur­borgar á nagla­dekkjum.

Gísli deilir þar tísti Katrínar Atla­dóttur, borgar­full­trúa Sjálf­stæðis­flokksins, þar sem hún deilir frétt Frétta­blaðsins og skýtur á Reykja­víkur­borg. Henni þykir skjóta skökku við að Reykja­víkur­borg kjósi að setja bílana sína á nagla­dekk þegar borgin sjálf hefur sent frá sér yfir­lýsingu um að nagla­dekk séu ekki góður kostur í Reykja­vík.

Í­búar borgarinnar eru þess í stað hvattir til þess að setja annars konar vetrar­dekk undir bílana sína, svo sem gróf, nagla­laus vetrar­dekk eða heils­árs­dekk. Að baki því liggja ýmsar á­stæður, segir á vef Reykja­víkur­borgar.

Þess má einnig geta að notkun nagla­dekkja er bönnuð frá 15. apríl til 31. októ­ber. Það þekkist þó vel að undan­tekningar séu gerðar þegar tekið er að kólna og frysta á landinu og hefur lög­reglan oft gefið út að öku­menn verði ekki sektaðir ef að­stæður til aksturs eru slæmar.

Gísli hefur verið afar framar­lega í um­ræðu um að banna notkun nagla­dekkja. Þá hefur hann sömu­leiðis talað fyrir stór­minnkaðri notkun einka­bíla og hvetur fólk til þess að nýta sér frekar al­mennings­sam­göngur eða reið­hjól.

Hann tekur því heils­hugar undir með Katrínu og segir: Hár­rétt! Al­gjör­lega glatað hjá Reykja­víkur­borg. Bílar borgarinnar leggja líka iðu­lega uppá gang­stéttum. Af sama meiði og hvað eftir­lit með að verk­takar tryggi hjá­leiðir fyrir gangandi er lé­legt. Greini­legt að stefna toppanna er ekki að ná út í kerfið og það er al­var­legt mál.“

Sá ein­stak­lingur sem stýrir að­gangi Reykja­víkur­borgar á Twitter tók sig til og svaraði bæði Gísla og Katrínu. Sam­kvæmt þeim er um­ræddur bíll á sér­stakri undan­þágu: „Þetta er 2-3 bílar sem eru á undan­þágu sem eftir­lits­bílar í sólar­hrings­þjónustu. Eru fyrstir á staðinn, oft að nóttu eða snemma morguns til að kanna til hvaða að­gerða þurfi að grípa í vetrar­þjónustu,“ segir í svari að­gangs Reykja­víkur­borgar.

Það gæti þó orðið breyting á þessu: „Hins vegar er þetta góð á­bending og mál verða endur­skoðuð eftir helgi,“ segir Reykja­víkur­borg enn fremur í svari til Gísla og Katrínar.