Meirihlutinn í bæjarstjórn Akureyrarhefur samþykkt bann við lausagöngu katta sem tekur gildi 1. janúar 2025. Þessi ákvörðun hefur vakið mikið umtal og sitt sýnist hverjum.
Gísli Marteinn Baldursson, fyrrverandi borgarfulltrúi og sjónvarpsmaður, segir að þetta sé „furðuleg ákvörðun“ í færslu á Twitter.
Hann veltir fyrir sér hvers vegna bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks hafi greitt atkvæði með banninu.
„Er þetta ekki flokkurinn sem er á móti boðum og bönnum?“ spyr Gísli Marteinn sem segist aðallega hundamaður en það sé „gleðiefni fyrir börn og fullorðna í Rvk að hitta ketti á gangstéttum og í görðum og gefur lífinu lit.“
Hvers vegna er XD á Akureyri að banna lausagöngu katta? Er þetta ekki flokkurinn sem er á móti boðum og bönnum? Ég er aðallega hundamaður en það er gleðiefni fyrir börn og fullorðna í Rvk að hitta ketti á gangstéttum og í görðum og gefur lífinu lit. Furðuleg ákvörðun.
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) November 3, 2021