Gísli Marteinn: Ekkert annað en hræsni – Sjáðu myndbandið

„Ég held það sé frábært að planta trjám á Íslandi. En pælingin að menga rosalega mikið og planta svo trjám sem syndaaflausn er hræsni,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, á Twitter-síðu sinni.

Þar deilir hann áhugaverðu myndbandi sem grínistinn Seán Burke birti á Twitter-síðu sinni. Þar er einmitt gert grín að umhverfisstefnu stórfyrirtækja í olíuiðnaði.

Gísli Marteinn heimfærir þetta yfir á Ísland og bendir á að stór hluti af umhverfisstefnu ríkisins snúist einmitt um það að menga og planta svo trjám til að vega upp á móti megnuninni.

„Hættum frekar að menga og plöntum samt trjám,“ segir Gísli.