Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, er talsmaður þess að leyfilegt verði að selja verkjalyf í matvöruverslunum.
Gísli Marteinn varpar þeirri spurningu fram á Twitter til Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, Hildar Sverrisdóttur og Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn greiddi atkvæði gegn því í fyrrasumar að verslanir mættu selja verkjalyf sem ekki krefjast lyfseðils til að leysa út.
Sagðist Gísli nefna þessar þrjár því hann hefur trú á þeim og heldur að þær séu ekki „forræðissinnað afturhald, eins og hluti flokksins þeirra er“ eins og hann orðar það.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, hafði áður vakið athygli á grein Berglindar Óskar Guðmundsdóttur, frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, sem birtist á Vísi þar sem hún gagnrýndi það að ekki væri hægt að nálgast verkjalyf nema í apótekum.
„Að heimila lausasölu lyfja er einfalt skref sem reynast mun almenning í landinu gríðarlega mikilvægt,“ sagði Berglind en yfirskrift greinar hennar var Leyfist mér að fá hausverk um helgar?
„Fínasta grein sem mætti fara upp á vegg í Valhöll. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa fellt tillögu Viðreisnar um nkl þetta. Um aukið frelsi. Þegar tækifæri er til að breyta segja þingmenn D nei. Sagan endalausa,“ sagði Þorgerður Katrín.
Atkvæði um málið voru greidd á Alþingi í fyrrasumar og var tillagan felld sem að framan greinir. Hér má sjá hvernig þingmenn greiddu atkvæði.
Hvers vegna greiddi XD atkvæði gegn því að verslanir mættu selja paratabs? @aslaugarna @hildursverris @thordiskolbrun Ég nefni þessar þrjár af því ég hef trú á þeim og held að þær séu ekki forræðissinnað afturhald, einsog hluti flokksins þeirra er. Ég vil verkjalyf í búðir. https://t.co/iE2nKGe0xA
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) March 4, 2021