Gísli Marteinn blandar sér í rök­ræður Brynjars og Andra Snæs - sakar Brynjar um hræsni

Brynjar Níels­son og Andri Snær hafa átt í líf­legum rök­ræðum sín á milli um loft­lags­mál eftir að Brynjar dró hlýnun jarðar í efa þar sem hita­stigið á Mall­or­ca var ekki jafn hátt og honum var lofað í fjöl­miðlum.

Eftir þó­nokkur skrif sín á milli á sjón­varps­maðurinn Gísli Marteinn að stíga inn í leikinn og saka Brynjar um hræsni

„Að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra sem greiddi at­kvæði gegn þungunar­rofi kvenna, vildi vísa 300 manns úr landi í sumar, vill nýja inn­flytj­enda­lög­gjöf og vald­efla lög­regluna sakar Andra Snæ um fas­isma þegar Andri spyr hvort blaða­fólk á Mbl sé sátt við af­neitun í lofts­lags­málum,“ skrifar Gísli Marteinn og deilir skjá­skotum af skrifum Brynjars.

Hátt í þrjú hundruð manns hafa like-að færslu Gísla og þá hjólar Þórður Snær Júlíus­son, rit­stjóri Kjarnans, einnig í Brynjar.