Gísli Marteinn birtir mynd og segir: „Það er kosið um þetta í vor“

Fjölmiðlamaðurinn og borgarfulltrúinn fyrrverandi Gísli Marteinn Baldursson hefur vakið mikla athygli fyrir innslag sitt á Twitter þar sem hann birtir mynd af göngugötunni við Austurvöll:

Hann segir:

„Þessi gata var einu sinni bílagata. Lélegir borgarfulltrúar mótmæltu því að banna þar bíla með nkl sömu rökum og núna eru notuð gegn Borgarlínu, göngugötu á Laugavegi, þéttingu byggðar eða hverju því öðru sem gott er og fallegt í þessari borg,“ segir Gísli Marteinn og bætir við: „Það er kosið um þetta í vor.“

Gísli rifjar upp að götunni hafi verið breytt í göngugötu árið 1991 í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins. „Á svipuðum tíma og ákveðið var að hleypa bílaumferð á Austurstrætið sem hafði verið frábærlega heppnuð göngugata frá 1974.“

Gísli birti fleiri færslur í gær um hvað það er gott að ganga:

„Fór í klippingu, fornbókabúð og á bjórkrá i miðborg Reykjavíkur núna síðdegis. Sit núna á kránni. REM er í græjunum. Ég elska þessa borg. Ég veit að það er af því ég fæddist hér og allt það, en mér finnst Rvk vera dásamlega falleg og sjarmerandi, líka í skítaveðri.“

Vorkennir hann þeim sem keyra:

„Flest keyra allt sem þau fara. Svo sorglegt hvað þau missa af miklu. Hljóðin, ilmurinn, fólk á förnum vegi, hús til að lesa, skrýtin húsasund og allskonar sem hefur í mörg hundruð ár örvað okkur og skemmt. Í staðinn situr það í Lay-Z-boy í málmhulstri til að komast milli staða.“

Hafliði Breiðfjörð hjá Fótbolta.net setur spurningamerki við tímasetninguna hjá Gísla:

„Kannski ekki alveg mánuðurinn til að segja þetta við okkur sem búum og vinnum í úthverfum þar sem gangstéttar eru ekki í boði lengur því snjó af götum er mokað þangað.“

Gísli skilur þetta sjónarmið vel: „Óþolandi hvað gangstéttar eru illa ruddar. Ég bjó samt í 111 og var í Háskólanum og átti ekki bíl. Fyrir vikið var ég mikið á rölti útum allar trissur og mæli með. En jafnvel þótt fólk eigi bil er gott ráð að nota hann ekki þegar farið er í miðbæinn.“