Gísli Marteinn ákveðinn: Lausnin er minni bílaumferð og nagladekkin burt

Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er ekki mikill aðdáandi einkabílsins og sér í lagi nagladekkja. Hann gerir þá miklu loftmengun sem verið hefur í Reykjavík síðustu daga að umtalsefni á Twitter-síðu sinni.

„Algjörlega magnað að mengun í Rvk sé svo mikil að fólki sé ráðið frá því að vera á ferli, leikskólabörnum haldið inni og það að „fá sér ferskt loft“ ekki í boði. Lausnin er minni bílaumferð, burt með nagladekk, betri almenningssamgöngur og styttri vegalengdir með þéttari byggð.“

Um þetta eru skiptar skoðanir og eru ekki allir sammála Gísla Marteini.

„Helvíti þungt fyrir okkur sem búa utan höfuðborgarsvæðisins að keyra án nagladekkja, getur verið stórhættulegt, hinum punktunum er ég sammála,“ segir hann meðal annars.