Sjónvarpsmaðurinn góðkunni Gísli Sigurgeirsson lenti í ótrúlegum ógöngum fyrr í þessum mánuði þegar hann sótti sér pizzu í útibú Dominos við Undirhlíð á Akureyri.
Fréttavefurinn Lifðu núna vakti fyrst athygli á færslu Gísla á Facebook sem er býsna skondin, að minnsta kosti ef litið er til þess að Gísli slasaðist ekki.
Þannig er að þau hjónin ákváðu að gera sér dagamun og panta sér pizzu sem Gísli segir að gerist ekki oft.
„Konan pantaði, en ég sótti. Þegar ég er að ganga út úr Dominos við Undirhlíð rak ég tána í einhverja and....... misfellu. Ekki þarf að orðlengja það; þessi tveggja metra maður tókst á loft, fór flikk flakk þvert yfir bílastæðið í ógnvekjandi hæð og með ólýsanlegum stíl, en hlunkaðist síðan niður á syðri öxlina með skvampi. Stuttu síðar lenti pizzan í frumeindum á hausnum á mér; botninn fyrst, síðan sveppirnir, pepperonisneiðarnar og annað álegg. Loks lenti pappakassinn, sem átti að halda flatbökunni heitri,“ segir Gísli.
Þar með er ekki öll sagan sögð því hann heyrði gosflöskuna skella með smassi í malbikið þar sem flutningabíl, annað hvort frá Eimskip eða Samskip, var ekið yfir hana.
„Verra gat ástandið varla orðið. Nú sá ég fram á að verða rassskelltur við heimkomu! En þegar neyðin er stærst er hjálpin nær en maður heldur,“ segir hann og bætir við að pizzasendill hafi komið aðvífandi þar sem hann varð vitni að flugferðinni.
„Hann var greinilega snortinn af stílnum sem ég sýndi í loftinu. En þegar hann hafði jafnað sig byrjaði kappinn á að draga mig upp úr „kvöldmatnum“ og studdi mig inn í afgreiðsluna. Þegar ég hafði sannfært hann um að ég þyrfti ekki sjúkrabíl fór hann út aftur og hreinsaði allt gumsið af slysstað. Á meðan heyrði ég að afgreiðslustjórinn skipaði sínum mönnum að búa til nýja flatböku fyrir mig í hvelli og sendillinn færði mér aðra kókflösku beint úr kæli,“ segir Gísli sem var kominn með kvöldmatinn aftur í fangið innan fárra mínútna.
Hann gerði aðra tilraun til að komast með fenginn út í bíl og heim og er skemmst frá því að segja að það tókst.
Gísli borðaði pizzuna með bestu lyst og þakkaði starfsmönnum Dominos fyrir einstaka þjónustu og greiðvikni. „Takk fyrir mig,“ sagði hann að lokum.