Gísli hjólar í Vigni: „Mikil­vægt við kjósum ekki fólk í vor sem er sam­mála svona þvælu“

Vignir S. Hall­dórs­son byggingar­verk­taki var gestur Dag­mála hjá mbl.is á fimmtu­daginn en þar sagði að hann að öll sveitar­fé­lögin á höfuð­borgar­svæðinu þyrftu að taka höndum saman til að leysa hús­næðis­vandann. Það þyrfti að brjóta mikið af nýju landi og stór­auka lóða­fram­boð. Ekki mætti ein­blína á þéttingu byggðar.

Sjón­varps­maðurinn Gísli Marteinn sem hefur lengi verið mikill stuðnings­maður þéttingu byggðar segir hug­myndir Vignis vera þvælu og vill alls ekki „fara dreifa borginni út um allar trissur því ein­hverjir verk­takar eru gráðugir í peninga.“

„Mjög mikil­vægt að við kjósum ekki fólk í vor sem er sam­mála svona þvælu. Við megum alls ekki fara að dreifa borginni út um allar trissur af því ein­hverjir verk­takar eru gráðugir í peninga. Við eigum að byggja inn á við, það er grænna og það er ó­dýrara fyrir alla til lengri tíma,“ skrifar Gísli

„Það er merki­legt hvað fá sem telja sig til hægri átta sig á því hvað nýtt út­hverfi kostar mikinn pening. Nýir inn­viðir, vegir, snjó­mokstur, um­ferða­teppur, gegnu­makstur í gegnum gömul hverfi os­frv. Byggð innan nú­verandi byggðar þýðir betri nýting inn­viða, betri með­ferð út­svars.,“ bætir hann við.

„Væri glap­ræði að dæla út lóðum austast. Fjöl­miðla­fólk sem talar um „lóða­skort“ þarf að skilja sam­hengið. Það er enginn slíkur, það eru búin að vera met­ár í upp­byggingu og þótt vextir ofl geri eftir­spurn skyndi­lega meiri er galið að bregðast við því með því að pissa í skóna sína,“ skrifar Gísli að lokum.