Gísli Garðarson, fyrrverandi varaþingmaður VG, greinir stöðu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í örstjórnmálaskýringu á Twitter. Þar grípur hann til skyndbitalýsinga.
„Ef þú ert með 10 manna hóp og 3 langar á KFC og 7 langar í pizzu en eru öll ósammála um á hvaða pizzustað, þá fer hópurinn samt ekki á KFC.“
Stjórnmálaskýring Gísla hefur vakið mikla athygli. Eins og alþjóð veit á Framsóknarflokkurinn í Reykjavík nú í formlegum meirihlutaviðræðum við bandalag Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar.
Píratar hafa útilokað samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og Viðreisn sagt flokkinn hafa verið of óskýran í sínum svörum um samgöngusáttmála og borgarlínu. Lýstu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins yfir undrun vegna þeirra ákvörðunar.
Sagði Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í gær að enginn væri að þvinga Framsóknarflokkinn í neitt. Einar Þorsteinsson sagði Hildi í kjölfarið að líta í eigin barm, til þess hvers vegna sumir flokkar vildu ekki vinna með flokknum í meirihluta.