Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna, segist hafa fengið ótrúlegt símtal á dögunum vegna erfiðrar stöðu Landspítalans. Gísli segir frá þessu í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag og segir að símhringingin hafi komið frá Sjúkratryggingum Íslands eða heilbrigðisráðuneytinu.
„Tilefnið var mjög erfið staða Landspítalans á þá leið að þar dveldu allt of margir aldraðir einstaklingar, sem ættu frekar að búa á hjúkrunarheimili en að eyða síðustu ævidögunum á hátæknisjúkrahúsi. Sem er sko algjörlega satt. En símtalinu fylgdi ótrúleg beiðni. Hvort við gætum ekki bætt við rúmum í einstaklingsherbergi Grundar þannig að það kæmust tveir heimilismenn í eins manns herbergi. Hoppað áratugi aftur í tímann í einu símtali. Og pissað rækilega í báða skóna. Ég trúði varla því sem ég heyrði, en þetta er dagsatt!,“ segir Gísli Páll.
Hann segir að á Grundarheimilunum, á Grund og í Ási, hafi verið unnið að því að fækka tvíbýlum og útbúa eins manns herbergi með sérbaðherbergi fyrir hvern og einn.
„Nokkur tvíbýli eru enn á Grund og sömu sögu er að segja úr Ási. Við stefnum að því að þau verði öll úr sögunni á næstu árum. En þarna var sem sagt verið að snúa við jákvæðri og skynsamlegri þróun undanfarinna ára á augabragði. Einhverjir gætu sagt að þetta yrði bara til bráðabirgða og stæði stutt yfir,“ segir Gísli sem bendir á móti á Vífilsstaði sem Landspítalinn rekur.
„Hefðbundnum hjúkrunarheimilisrekstri var hætt þar árið 2010, enda húsnæðið og öll aðstaða allsendis ófullnægjandi til slíks. En viti menn, í lok árs 2013 var opnuð þar biðdeild LSH, til bráðabirgða og er enn rekin sem slík fyrir þá sem hafa lokið meðferð á sjúkrahúsinu og bíða þess að komast í varanlega dvöl á hjúkrunarheimili. Þar búa í dag 42 einstaklingar. Átta ára bráðabirgðaúrræði? Hvað ætli langtímaúrræði nái yfir langan tíma?,“ spyr Gísli.
Hann segir að stjórnvöld hafi dregið lappirnar um of varðandi uppbyggingu nýrra hjúkrunarrýma á suðvesturhorni landsins um langt árabil.
„Reglulega dúkkar upp umræða meðal opinberra aðila um aukna heimahjúkrun og heimaþjónustu, en eins og hingað til eru slík vilyrði því miður frekar í orði en á borði. Aukin þjónusta heim er að sjálfsögðu af hinu góða en hún dugar ekki til því aldurssamsetning þjóðarinnar er með þeim hætti að við þurfum einnig ný hjúkrunarrými. Vonandi sér ný ríkisstjórn ljósið og dregur til baka þessar forneskjulegu hugmyndir um að fjölga einstaklingum í þeim herbergjum sem núverandi heimilismenn hjúkrunarheimila búa í í dag. Pissið verður fljótt kalt í skónum.“