Gísli: „Ég virðist hafa smitast af andar­drætti í rýminu“

Gísli Hall­dór Hall­dórs­son, bæjar­stjóri Ár­borgar, glímir enn við eftir­köst CO­VID-19 þó að sex mánuðir séu liðnir síðan hann veiktist. Gísli var í á­huga­verðu við­tali í Morgun­blaðinu um helgina þar sem ræddi veikindin.

Gísli segir að hann hafi smitast 13. mars og veikst kvöldið eftir en svo vildi til að hann hafði verið að vinna með manni sem var með veiruna.

„Við vorum búnir að vera hér tveir á skrif­stofunni og vorum ein­mitt að ljúka við að skipu­leggja allt varðandi Co­vid; að setja upp við­bragð­steymi og fleira. Ég smitaðist af honum, en við áttum hér saman einn tíu, fimm­tán mínútna fund en þá var hann ekki kominn með nein ein­kenni. Ég virðist hafa smitast af andar­drætti í rýminu,“ segir Gísli í við­talinu.

Sam­starfs­fé­lagi Gísla fékk ein­kenni um kvöldið en Gísli daginn eftir. Gísli segir að hann hafi verið í ein­angrun í 39 daga en eftir út­skrift tók við endur­hæfing ef svo má segja, byggja upp þol og út­hald. Það gekk vel til að byrja með en eftir þrjár vikur fór Gísli að finna fyrir veru­legri þreytu.

„Ég fór var­lega í að byggja mig upp og þessi þreytu­köst urðu færri og styttri; allt niður í klukku­tíma­löng,“ segir Gísli sem hefur af og til upp­lifað þreytu­köst í sumar. Hann fór til dæmis í tjald­úti­legu í sumar og fékk þá þreytu­kast og svo var hann þreyttur í þrjá daga eftir að hafa farið út að hlaupa.

„Ég er ekki að glíma við al­var­leg eftir­köst en það er leiðin­legt að hafa ekki fulla orku,“ segir hann meðal annars í við­talinu og bætir við að hann mæli ekki með því að fólk næli sér í CO­VID-19.