Breiðhyltingar eru allt annað en sáttir við verðið á eldsneyti sem þeim er boðið upp á í hverfinu. Gísli Matthías Gíslason, íbúi í hverfinu, vakti athygli á því í Facebook-hópi íbúa að verðið á bensínlítranum hafi verið 249,5 krónur á Orkunni í Suðurfelli þegar hann hugðist taka eldsneyti á fimmtudag.
Óhætt er að segja að Gísla hafi blöskrað verðið og fór hann því á Orkuna á Dalvegi þar sem verðið var 211,3 krónur lítrinn, munaði því 38,2 krónum á lítranum. Þetta getur skipt miklu máli fyrir budduna þegar safnast saman og segist Gísli hafa sparað 1.910 krónur með því að taka eldsneytið á Dalvegi í stað þess að taka það í Suðurfelli. Þess má geta að örfáir kílómetrar eru á milli þessara tveggja stöðva.
„Eigum ekki að láta bjóða okkur svona, þó við búum í Breiðholtinu. Ps á engra hagsmuna að gæta hjá neinu olíu félagi,“ sagði Gísli í færslunni.
Þessar upplýsingar Gísla eiga allar við rök að styðjast ef marka má upplýsingar á vefnum bensínverð.is. Ódýrasta bensínið hjá Orkunni er einmitt á Bústaðavegi, Dalvegi og Reykjavíkurvegi, eða 211,3 krónur lítrinn, en á öðrum stöðum Orkunnar er það 249,5 krónur. Verðið er svo lægst hjá Costco, 206,9 krónur en eingöngu þeir sem hafa aðgangskort að Costco geta keypt eldsneyti þar.
Fjörugar umræður hafa farið fram um málið í Facebook-hópi íbúa og eru margir hverjir allt annað en sáttir við verðið.