Gigg Ingós á Tenerife fer fram þó auglýsingin hafi horfið

Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, verður með tónleika á íslenska veitingastaðnum Bambú bar & bistro á Tenerife í kvöld.

Hringbraut greindi frá fyrirhuguðum tónleikum hans í gær og er óhætt að segja að fréttin hafi vakið mikil viðbrögð. Eins og kunnugt er hefur lítið farið fyrir Ingó að undanförnu eftir að ásakanir gegn honum birtust á samfélagsmiðlum fyrr í sumar. Urðu þær til þess að hætt var við að fá Ingó til að sjá um Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þá missti Ingó einnig önnur verkefni. 

Eftir umfjöllun Hringbrautar hvarf aftur á móti auglýsing um tónleikana sem forsvarsmenn Bambú bar & bistro höfðu birt á Facebook-síðu sinni og á Facebook-síðunni Íslendingar á Tenerife. Veltu einhverjir því fyrir sér hvort hætt hefði verið við tónleikana. Svo er þó ekki. Fréttablaðið greinir frá því að tónleikarnir fari fram í kvöld og er þetta því væntanlega fyrsta gigg Ingós í nokkuð langan tíma.

Ingó hefur um langt skeið verið í hópi vinsælustu tónlistarmanna þjóðarinnar og mun hann vafalítið spila sín vinsælustu lög í kvöld.