Getum breytt mjög hratt um stefnu

Sóttvarnarreglur eru breyttar frá og með miðnætti í gær. Nú getur fólk komið frá útlöndum og sloppið við 2ja vikna sóttkví ef það samþykkir skimun við landamærin á Keflavíkurflugvelli. Þar hefur verið sett upp skipulagt skimunarsvæði, búið að koma fyrir tíu skimunarbásum sem geta alls tekið sýni úr 200 manns á klukkustund. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörum segir í þættinum 21 í dag hjá Lindu Blöndal að fram eftir degi hafi allt gengið vel, engar tafir en allir farþegar þurfa að útfylla upplýsingablað um heilsufar sitt, m.a. um hvort það hafi greinst með Covid-19, dvalarstað næsta sólarhringinn og fleira.

Upplýsingarnar eru geymdar í læstum gagngrunni Landlæknisembættisins, að sögn Víðis og af máli hans að dæma eru þessar upplýsingar grundvallaratriði í því að allt eftirlit og eftirfylgni sé möguleg.

Víðir segir að komi vél eftir vél til landins og mikið af smituðu fólki hafi sóttvarnarlæknir víðtækar heimildir til að breyta um stefnu. Einnig gangi þetta í hina áttina líka, mælist stór hluti sem hingað kemur neikvæður sé metið hvort skimunar sé lengur þörf.

„Eins og sóttvarnarlæknir hefur nokkrum sinnum sagt, það veit enginn hvenær opna á landamæri eftir heimsfaraldur, en það sem við getum gert, við Íslendingar í þessu, öll ákvarðanataka er einföld hjá okkur, boðleiðir eru stutta og það er mjög fljótlegt að breyta því sem þarf að breyta. Þannig að ef í ljós kemur núna næstu daga að hingað streyma bara mikið af jákvæðu fólki frá einhverjum ákveðnum svæðum þá er lítið má að segja, við bara tökum ekki við flugvélum af þessu svæði“, segir Víðir.

Átta flugvélar lenda á Keflavíkurflugvelli í dag með um 600 farþega og segir Víðir að svo virtist að fyrri part dags hafi meirihlutinn verið Íslendingar á leið heim. Allir farþegar þáður skimun fram eftir degi, sem er endurgjaldslaus fyrstu 2 vikurnar en annars á 15 þúsund fyrir hvern fullorðinn.