Geta reddað sér vinnu í harkhagkerfinu

Ýmis konar hagkerfi hafa verið nefnd til sögunnar undanfarin ár, svo sem deilihagkerfið, umhyggjuhagkerfið - en svo er til Harkhagkerfi líka.

Harkhagkerfið byggir á gamalli hugmynd um að auglýsa þjónustu sína í eins konar smáauglýsingum en þó með ýmsum nútímalegum viðbótum. Nýr vettvangur er vefsíðan maur.is og þar má „harka“ eða redda sér verkefnum á tímum uppsagna og atvinnuleysis.

Hugmyndina hefur Ilmur Eir Sæmundsdóttir stofnandi vefsíðunna maur.is komið á formlegan vettvang til að auglýsa krafta sína til minni eða lengri verkefna – maur tengir saman verktakann og verkkaupann, sem getur verið allt frá því að auglýsa göngutúra með hunda til þess að pússa parkett eða gera við veiðistangir. Ilmur Eir mætti í þáttinn 21.

Á vefsíðunni segir: „Maur.is gefur þeim sem hafa einhvers konar hæfileika eða menntun tækifæri á því að auglýsa þjónustu sína. Hvort sem þú ert stærðfræðisnillingur, múrari, ljósmyndari eða hefur yndi af því að þrífa þá er Maur fyrir þig! Þú skráir þig á Maur.is og býrð til prófíl með lýsingu á þér og þinni sérgrein. Eftir að þú hefur tekið að þér verkefni getur þú svo fengið umsögn og byggt upp orðstír þinn“.

Slík verkefni má sinna með hlutabóatleiðinni og atvinnuleysisbótum fram að frítekjumarki án skerðingar.

Ilmur Eir hefur byggt upp vefinn undanfarið ár og hefur verið frír prufutími og svo áskriftargjald á 1990 krónur á mánuði.