Geta fengið Parkódín án lyfseðils

Frá og með morgundeginum geta einstaklingar með COVID-19 fengið Parkódín án lyfseðils í apóteki. Hver sjúklingur getur fengið tíu 500mg./10 mg. töflur. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins sem vísar í svar frá Heilsugæslunni.

Til að fá Parkódín þarf að framvísa vottorði úr Heilsuveru um staðfest Covid smit og gildir undanþágurásðstöfunin einungis dagana 16. mars -18. apríl.

Lyfjafræðingar í apótekum munu veita ráðgjöf varðandi Parkódín til Covid sjúklinga ásamt því að fyrirmæli um notkun lyfsins verða skráð á pakkningu þess. Apótek hafa nú þegar fengið leiðbeiningar á útfærslu sendar til sín.