Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, segir að versluninni hafi í gegnum árin borist ógrynni fyrirspurna frá áhyggjufullum körlum. Óttast þeir að þeir séu með typpi undir meðalstærð og eru jafnvel farnir að íhuga að grípa til drastískra aðgerða.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Gerði í Fréttablaðinu í dag, en tilefnið er umfjöllun í gær um typpastærðir víða um heim. Karlmenn frá Ekvador eru sagðir státa af lengstu limunum, 17,61 sentímetra í fullri reisn að meðal tali, en karlmenn í Kambódíu eru sagðir reka lestina með meðalstærðina 10,04 í fullri reisn.
Gerður segir það af og frá að viðskiptavinir hennar sem fjárfesti í gervilimum eða titrurum séu á höttunum eftir þeim sem séu hvað stærstir eða þykkastir. Því stærri, því betri, sé algeng mýta sem endurspegli ekki raunveruleikann.
Hún segir að vinsælasti gervilimurinn sé tæplega fjórtán sentímetrar og í takt við venjulega stærð af typpum.
Gerður bætir svo við að margir hafi óraunhæfar hugmyndir í þessum efnum og það geti grafið undan sjálfstrausti, til dæmis í svefnherberginu.
„Þeir geta náttúrulega ekkert annað gert. Typpið er ekki vöðvi og því ekki hægt að fara í ræktina til að stækka það. Það virkar ekki þannig. Annars væru allir berrassaðir í World Class að lyfta með typpinu,“ bætir hún við.
Nánar má lesa um málið í Fréttablaðinu í dag og á vef Fréttablaðsins.