Gerðu hróp að Bjarna : „Shame on you! Shame on you!“ – Sjáðu myndbandið

Hópur fólks á vegum Eflingar kom saman við ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu nú í morgun þar sem ríkisstjórnarfundur fór fram. Gerði fólk köll að ráðherrum, Bjarna Benediktssyni, þar á meðal þegar hann gekk út í bíl sinn að fundi loknum. Fréttablaðið greinir frá þessu.

„Shame on you! Shame on you!,“ kölluðu mótmælendur að Bjarna og heftu för bílstjóra hans. Myndband frá mótmælunum við ráðherrabústaðinn má sjá hér neðst í fréttinni.

Efling hafði sent frá sér tilkynningu þar sem fram kom að mótmælt yrði friðsamlega í dag. Hópurinn var með gjallarhorn sem Sólveig Anna nýtti óspart og sagði hún meðal annars Bjarna að skammast sín.

„Þið höfðuð tækifæri og hafið enn tækifæri til að sýna pólitískt hugrekki, pólitíska getu til að koma böndum á þennan svívirðilega húsnæðismarkað sem étur upp öll laun Eflingarfólksins sem þar er fast,“ sagði Sólveig Anna sem bætti því við að það væri skylda ríkisstjórnarinnar að koma á leiguþaki.