Bubbi Morthens mætti geranda sínum í viðurvist fagaðila þar sem gerandinn viðurkenndi að brot sín fyrir framan Bubba.
Bubbi segir í hjartnæmri færslu á Twitter:
„Það var ótrúlegur léttir og góð tilfinning þegar gerandi minn viðurkendi brot sín fyrir framan mig við áttum samtal með fagaðila öll þessi reiði sársauki sem hafði litað lífið er horfinn ég varð loksins frjáls.“
Bubbi opnaði sig fyrir nokkrum árum um kynferðislega misnotkun sem hann varð fyrir sem strákur. „Ég er enn að vinna úr þessu og þetta er eitthvað sem markar þig fyrir lífstíð,“ sagði hann í viðtali við RÚV árið 2017.