Gera könnun á áhrifum COVID-19 á skólastarf: „Skólarnir eru hjarta hvers samfélags“

Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun, í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga, gera könnun meðal skólafólks um viðbrögð við COVID-19 faraldrinum og áhrifum hans á skólastarf en þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu um málið.

Í tilkynningunni er vísað til þess að niðurstöður sambærilegra kannana sem voru gerðar í vor um áhrif COVID-19 á skólastarf hafi sýnt að börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu hafi farið verr út úr samkomubanni og skertu skólastarfi. Í dag tóku gildi hertar samkomutakmarkanir en reynt verður að tryggja að skólastarf fari fram með eins hefðbundnum hætti og frekast er unnt.

Alþjóðlegur dagur kennara fer fram í dag en yfirskrift dagsins vísar til þess hvernig kennarar sem leiðtogar í sínu samfélagi endurskapa framtíðina. Að sögn Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur mikilvægi menntakerfisins sýnt sig í faraldrinum.

Lilja fundaði með SÍS og forystufólki KÍ um stöðuna. Þar var meðal annars rætt hvernig betur væri hægt að tryggja öryggi og velferð kennara og nemenda á tímum COVID-19. Meðal þess sem verður komið inn á í könnuninni verður hver áhrif veirunnar hafa verið á starfsaðstæður og öryggi starfsfólks og nemenda en á grundvelli könnunarinnar verður skerpt á umgjörð skólastarfs sem og fræðslu og ráðleggingum til skóla og heimila.

„Öryggi og velferð innan skólasamfélagsins er samvinnuverkefni okkar allra – skólarnir eru hjarta hvers samfélags. Við verðum hvert um sig að huga vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum, sýna hvert öðru tillitssemi og virðingu. Það reynir á samstöðu okkar og sveigjanleika í aðstæðum sem þessum, þetta er sannarlega langhlaup en ég er þess fullviss að við munum komast í mark. Við eigum allt að vinna að halda áfram uppi sem þróttmestu skólastarfi,“ segir Lilja.