Gera grín að afsökun Ara Edwald í viðtali við Stundina

Ari Edwald, fyrrverandi forstjóri og einn þeirra þriggja sem fór í afdrifaríka sumarbústaðaferð með Vítalíu Lazareva, gaf ekki kost á því að svara spurningum Stundarinnar þegar blaðamaður hafði samband við hann á dögunum.

Í nýjasta tölublaði Stundarinnar er greint frá því að svokallaðir þöggunarsamningur hafi verið ræddur í máli Vítalíu og þremenninganna. Herma heimildir Stundarinnar að rætt hafi verið, áður en Vítalía steig fram í viðtali við Eddu Falak og opnaði sig um málið, að hún fengi greidda ákveðna upphæð á mánuði yfir ákveðið tímabil. Í fréttinni kemur fram að ein talan sem nefnd hafi verið hafi verið 25 milljónir króna yfir 5 ára tímabil, 420 þúsund á mánuði.

Stundin náði tali af Ara vegna málsins en það eina sem hann sagði var þetta:

„Ég er að keyra hérna beinskiptan bíl og ég er ekki til í að taka neitt samtal um þetta núna. [...] Ég er bara ekki í aðstöðu til að spjalla við þig núna,“ sagði hann.

Svar Ara vakti talsverða athygli á Twitter eins og sjá má hér að neðan: