George Clooney meðal leikara sem hafa greitt skatta á Íslandi

Stórleikarinn George Clooney var staddur hér á landi nýverið við tökur á myndinni The Midnight Sky en Fréttablaðið greinir frá því að Clooney, sem leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í myndinni, hafi greitt skatta meðan hann var á landinu.

Kristinn Þórðarson, framleiðandi hjá True North og formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, segir í samtali við Fréttablaðið að það gleymist oft að leikarar verkefna sem eru tekin upp á Íslandi greiði skatta þá daga sem vinnan stendur yfir.

Þannig má gera ráð fyrir að aðrir stórleikarar á borð við Will Smith, Chris Pratt, Will Ferrel og Rachel McAdams hafi gert slíkt hið sama.

Samkvæmt lögum fá erlendir kvikmyndaframleiðendur 25 prósent af framleiðslukostnaði endurgreitt úr ríkissjóði en The Midnight Sun fékk 313 milljónir endurgreitt.

Að sögn Kristins vill Samband íslenskra kvikmyndaframleiðanda hækka endurgreiðsluna upp í 35 prósent til að laða erlenda framleiðendur til landsins.

„Það er að mínu mati frábær fjárfesting en ekki styrkur,“ segir Kristinn í samtali við Fréttablaðið. „Við erum í harðri samkeppni við lönd í kringum okkur sem eru með hærra hlutfall.“

Frétt Fréttablaðsins í heild sinni má lesa hér.