Gekk berserksgang um verslunarmannahelgina: Grunaður um að ráðast á tvær konur og nauðgun

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, nauðgun og brot í nánu sambandi gagnvart konu. Og þá er hann jafnframt ákærður fyrir líkamsárás gagnvart annari konu. Báðar meintar árásir áttu sér stað í Reykjavík um frídag verslunarmanna á þessu ári.

Honum er gefið að sök að hafa brotið rúðu á bíl sem konan var í, slegið hana ítrekað í höfuð og líkama, draga hana úr bílnum, hrinda henni á götuna. Síðan á hann að hafa tekið hana hálstaki og rifið í hár hennar áður en hann tók upp hníf og hélt honum upp að hálsi hennar á meðan hann þvingaði hana til að liggja ofan á glerbrotum. Síðan á hann að hafa hótað henni líkamsmeiðingum og lífláti, til dæmis með því að segjast ætla að klippa af henni snípinn, skera hana á háls og klippa af henni hárið. Á meðan á þessu stóð hafi hann nauðgað henni með því að neyða hana til munnmaka, samræðis og endaþarmsmaka. Á meðan á konan ítrekað að hafa beðið hann um að hætta.

Hann var jafnframt ákærður fyrir aðra líkamsárás sem átti sér sama dag. Þar er honum gefið að sök að slá aðra konu ítrekuðum hnefahöggum í andlitið, gefa henni olnbogaskot, rífa í hár, sparka í andlitið á henni, taka hana hálstaki og þrengja að öndunarvegi, og síðan rífa hana úr bíl.

Báðar konurnar hlutu mikla áverka.