Gekk berserksgang og lét öllum illum látum í Kórnum

Þjálfari karlaliðs Gróttu, Chris Brazell lét öllum illum látum á meðan leik liðsins gegn HK í Kórnum stóð í síðustu viku og þá sérstaklega eftir hann.

Fótbolti.net fullyrðir að þjálfarinn hafi beðið í klukkustund fyrir utan klefana til að geta náð tali af Erlendi Eiríkssyni, dómara leiksins að leik loknum. Brazell vildi meina að leikamaður HK hafi gerst brotlegur í aðdraganda sigurmarks liðsins í leiknum sem fór 2-1 fyrir HK.

Þjálfaranum hafi á endanum verið vísað út úr húsinu. Hegðun Brazell í garð starfsfólks HK hafi ekki verið honum til sóma.

„Sex menn þurftu að labba út með Ella Eiríks á Íslandi í Kórnum,“ segir Hrafnkell Freyr Ágústsson, einn sérfræðinga í hlaðvarpsþætti Hjörvars Hafliðasonar, Doctor Football. Þar var málið rætt í nýjasta þættinum sem hlusta má á hér að neðan.

„Þeir hljóta að taka hann gjörsamlega á teppið,“ segir gáttaður Hrafnkell jafnframt um málið.