Geirmundur Valtýsson engum líkur: „Sem betur fer hef ég aldrei farið til útlanda“

Tónlistarmaðurinn Geirmundur Valtýsson sér ekki eftir neinu þó hann hafi aldrei farið til útlanda.

„Ég er búinn að horfa á sjónvarp dálítið lengi, alla mína ævi, og er búinn að horfa á myndir frá útlöndum. Ég er bara búinn að sjá það sem mig langar að sjá,“ segir Geirmundur í nýjasta þætti Með okkar augum sem verður sýndur í Sjónvarpinu í kvöld.

Geirmundur er búsettur á Sauðárkróki þar sem vel fer um hann og eiginkonu hans, Mínervu Björnsdóttur. Í viðtalinu, sem brot er birt úr á vef RÚV, kemur fram að sveiflukóngurinn hafi líkast til troðið upp á öllum stöðum landsins en í útlöndum hafi hann aldrei spilað. Og ástæðan er einföld: Hann hefur aldrei farið til útlanda.

„Sem betur fer hef ég aldrei farið til útlanda. En ég hef farið út í Hrísey, út í Grímsey og til Vestmannaeyja að spila,“ segir Geirmundur sem lætur sér duga að horfa á svipmyndir frá útlöndum í sjónvarpinu.