Geir Ólafs var nokkrar vikur að átta sig á sím­tali Mið­flokksins: „Ég fæ mörg sím­töl á viku sem eru grín“

Söngvarinn Geir Ólafs sem er fram­bjóðandi Mið­flokksins í Kópa­vogi núna hélt að flokkurinn væri að grínast þegar þeir buðu honum sæti á lista.

„Ég hélt að væri eitt af grínsím­tölunum. Ég fæ mörg sím­töl á viku sem eru grín. Allt í lagi með það, ég tek því bara fagnandi,“ segir Geir í sam­tali við K100.

Það var ekki fyrr enn nokkrum vikum síðar sem hann áttaði sig á því að flokkurinn var ekki að grínast og var hann beðinn um að skrifa undir.