Geir Finnsson, enskukennari í Menntaskólanum á Ásbrú og frambjóðandi á lista Viðreisnar í síðustu Alþingiskosningum, leggur fram áhugaverða lausn á vandanum sem steðjar að menntakerfinu og lærdómsvenjum ungs fólks í aðsendri grein á Vísi í dag.
Hann segir að bæta megi lærdómsaðferðir, námsárángur og líðan nemenda með nýrri tegund af kennslu.
„Ungmenni allra tíma eiga það sameiginlegt að koma með ferska sýn og gera nýjar kröfur til samfélagsins. Undir þetta geta flestir kennarar tekið. Nýjar kynslóðir alast upp við öðruvísi þekkingu og þarfir sem skólasamfélagið verður að mæta. Til þess þarf nýja kennslunálgun sem grípur nemendur og býr þá undir samfélagið sem bíður þeirra að námi loknu. Leiðin að því marki þarf hins vegar ekki að vera úr sjónmáli,“ segir Geir.
Lausnin sé svokallað vendinám.
Geir heldur áfram: „Þetta er vissulega ekki í fyrsta sinn sem ungur kennari predikar ágæti vendináms og þetta verður heldur ekki síðasta skiptið. Um er að ræða nýlega kennslunálgun sem felst í því að líta á nám út frá tveimur rýmum. Það er annars vegar einstaklingsrýmið (e. individual space), þegar nemendur vinna á eigin forsendum og hins vegar hóparýmið (e. group space) þegar nemendur vinna í samvinnu við aðra nemendur eða kennara - oftast í skólastofu eða í gegnum netið.“
Geir segir að í vendinámi sé meginreglan sú að þegar nemendur meðtaki og öðlist nýjar upplýsingar með því að horfa, hlusta eða lesa eitthvað, þá eigi það einungis að gerast í hinu svokallaða einstaklingsrými.
„Það rými getur verið hvar sem er, t.d. heima hjá nemendum, á bókasafni, kaffihúsi eða einfaldlega einhvers staðar þar sem þeir geta verið í friði að meðtaka nýjar upplýsingar. Þegar nemendur mæta svo í tíma, í hóparýmið, nýta þeir upplýsingarnar sem þeir öfluðu utan kennslustofunar og vinna verkefni sem byggjast á þessum sömu upplýsingum. Engin þörf er á sérstökum útskýringum eða fyrirlestrum drjúgan hluta tímans,“ útskýrir Geir.
Með þessu fyrirkomulagi verður því heimanám nemenda aðgengilegra, að sögn Geirs.
Geir hefur reynslu af þessu fyrirkomulagi á vinnustað sínum: „Þótt íslenskir framhaldsskólar styðjist fyrst og fremst við hefðbundið kennslufyrirkomulag, eru engu að síður skólar hér sem hafa innleitt vendinám að einhverju leyti. Einn slíkur skóli, Menntaskólinn á Ásbrú (MÁ) styðst reyndar einvörðungu við vendinám. Það vill svo til að eftir að ég brautskráðist í vor var ég ráðinn sem enskukennari þar. Í þessum glænýja og litla skóla er ég eini enskukennarinn og býðst mér því dýrmætt tækifæri til að móta ensku-vendinámskennslu hérlendis,“ segir Geir.
Með þessu sé hægt að minnka heimanám og stuðla að betri starfskröftum á vinnumarkaðnum í framtíðinni: „Fyrir mitt leyti er áhugavert að fylgja fræðunum eftir í verki og upplifa beinan árangur af vendinámi. Nemendur tileinka sér þau vinnubrögð að vera virkir í tímum og ljúka verkefnum á staðnum, í stað þess að vera óvirkir hlustendur í skólanum og eiga svo ókláruð verkefni eftir heima. Er það ekki einmitt hugarfarið sem við viljum að brautskráðir nemendur tileinki sér áður en þeir fara á vinnumarkaðinn?“
Geir segir góða reynslu af vendikennslu á heimsvísu og nú sé komið að Íslandi: „Nú sjáum við að íslenskt skólakerfi er í stakk búið til að innleiða slíka kennslunálgun. Tæknin er komin og reynslan af tækninni er sömuleiðis mjög góð hjá öllu skólasamfélaginu. Nú þarf bara að láta verkin tala.“