Hver kannast ekki við að eiga staka sokka ofan í skúffu? Einhverra hluta vegna eiga sokkar ótrúlega auðvelt með að týnast og stundum er engu líkara en að jörðin hafi hreinlega gleypt þá.
Gefn Baldursdóttir birti skemmtilega mynd á Facebook-síðu sinni í gær sem hún gaf Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta. Á myndinni má sjá hvað leyndist inni í þurrkara fjölbýlishúss við Austurbrún á dögunum, en viðgerðarmaður hafði verið kallaður á staðinn þar sem þurrkarinn þótti gefa fullmikinn hávaða frá sér.
Eins og sést á meðfylgjandi mynd hafði fjöldinn allur af sokkum – og meira að segja gallabuxur – náð að troða sér með einhverju móti á bak við tromluna og inn í sjálfan þurrkarann. Það var ekki fyrr en þurrkarinn var tekinn í sundur að sokkarnir, gallabuxurnar og náttsloppur af Gefn meðal annars komu í ljós.
„Ég er ekki alveg að fatta hvernig þetta gerðist,“ segir Gefn en 72 íbúðir hafa aðgang að þurrkaranum þannig að hann er talsvert mikið notaður.
„Búin að leysa ráðgátuna um týndu sokkana (ofl.) Það er þurrkarinn í sameigninni hjá mér. Þeir ásamt fleiri fötum fundust í þurrkaranum þegar hann var tekinn í sundur vegna hávaða,“ sagði Gefn á Facebook-síðu sinni um leið og hún birti þessa áhugaverðu mynd.