Fréttablaðið greindi frá heldur ógeðfelldu atviki í gærkvöldi þegar hópur ungra kvenna lenti í við náttúrlaug við Húsavík að ókunnugur karlmaður tók myndir af þeim nöktum í leyfislesi.
Umræddur hópur samanstóð af fimm konum og einum karlmanni. Í samtali við Fréttablaðið lýsa tveir meðlimir hópsins atburðinum sem átti sér stað síðastliðið sunnudagskvöld. Þau ætluðu að eiga notalega og rólega kvöldstund í lauginni sem er staðsett nálægt Húsavík.
Þegar þau höfðu verið í lauginni í um það bil hálftíma gekk maðurinn úr hópnum frá þeim að bílnum sem þau komu á, og á meðan fóru konurnar upp úr og fóru að skipta um föt. Þau taka fram að á meðan þau voru í baðlaugini voru þau klædd baðföt, en á meðan þau voru að skipta um föt segjast þær hafa orðið varar við mann í fjarska, og töldu líklegt að hann væri að taka myndir af þeim.
Í samtali við DV lýsir ein kvennanna manninum í smáatriðum. „aðurinn sjálfur lítur út fyrir að vera um sextugt en með honum var vinkona eða unnusta hans sem lítur út fyrir að vera um fimmtugt. Maðurinn er gráhærður og þunnhærður, með yfirvaraskegg. Hann ekur um á ljósgráum húsbíl af gerðinni Fiat,“ kemur fram í frétt DV.
Maðurinn hafi brugðist við kvörtunum þeirra með dónaskap og yfirlæti. Hann hafi meðal annars sagt að hann hefði rétt á því að mynda „sexy women in nature“. Unnusta mannsins er líka sögð hafa gert lítið úr málinu og hlegið.
„Hann sagði að það væri okkur að kenna að vera naktar á almannafæri,“ segir konan.
Lögreglan á Húsavík var kölluð á vettvang og fór yfir myndavél mannsins og er talið að myndunum hafi verið eytt.
Lögreglumennirnir höfðu ekki forsendur til að handtaka manninn en viðmælendur DV segja að lögreglumennirnir hafi unnið málið af fagmennsku og verið mjög kurteisir.
Stúlkurnar óttast hins vegar að maðurinn haldi iðjunni áfram og vilja að fólk varist hann. „Við viljum vara fólk við þessum manni. Svona hegðun á hvergi og aldrei að líðast,“ segir konan.